Tinna litla í París

Það getur allt gerst í París.....

01.11.2010 16:00:16 / tinnsla

Stuttar upplýsingar...

Það gerist svo margt hér í París og þess vegna frá svo miklu að segja svo að ég ákvað að skella í nokkra punkta svona til að auðvelda lesturinn:

- Klósettin hérna eru tvíkynja...konur og karlar nota sama klósettið

- Skólinn minn er svo skítugur að það var blóðrönd á klósetthurðinni þegar ég byrjaði og hún er þar enn.....

- Fegin að krakkarnir í skólanum eru EKKI að drepast úr artí-leika...

- Hér eru ekki pylsusalar á götunum heldur maísstönglasalar...

- Her fáum við okkur bjór/vín í hádeginu í skólanum...rétt fyrir PRÓF!!!!

- Franska fyrir byrjendur er kennd á frönsku......(!!!!!)

- Ákvað allt í einu á miðvikudaginn að skilja eitthvað aðeins í frönskutíma...

- Ef þú ferð á kaffihús og biðum um kaffi þá færðu expresso....

- Kaffivélin í skólanum er með innstillta 3 sykurskammta í kaffið þitt

- Kennarinn sem kennir klippingu er frægur. Var aðstoðarklippari í Apocalypse Now-
Delux, Cold Mountain, English Patient og Jarhead svo eitthvað sé nefnt

- Hér er EKKI töff að sjúga í nefið. Snýttu þér. 

- Bekkurinn minn fer svo oft á sama veitingastaðinn í hádeginu að við erum farin að fá gefins pizzur, bjór og snakk. (sem er kaldhæðni því ég ásamt mörgum komum með nesti að heiman og borðum þar...)

- Heineken er actually GÓÐUR bjór hérna...

Þangað til næst...
...þá getur allt gerst í París

» 12 hafa sagt sína skoðun

24.10.2010 12:22:51 / tinnsla

Verkföll og vesen!

Þá hef ég loksins komist í skólann! Guð blessi! En það er ekki gefið mál samt. Seinni lestinni minni var bara yfir höfuð cancelerað for good þannig að þá þurfti mín að finna nýja leið í skúlen. Það tekur aðeins lengri tíma en er klárlega þess virði, á meðan ég kemst í skólann!
Ég pantaði þær kennslubækur sem ég þarf fyrir skólann fyrir tæpum 2 vikum síðan og þær eru komnar EN.....þær eru fastar á pósthúsinu því það er lokað einhverra hluta vegna!!

Nú fer þetta líka að byrja fyrir alvöru í skólanum! Á föstudaginn byrjuðum við í fyrstu tökunum okkar. Okkur var skipt upp í 8 hópa með 4 í hverjum hóp og verkefnið var þannig að allir áttu að taka upp 3 senur. Í hverju atriði átti að koma fram persóna, hlutur og staðsetning og átti hver sena að leggja áherslu á þessa 3 hluti. 
Krakkarnir sem ég lenti með í hóp voru öll voðalega pró, höfðu gert þetta allt saman áður og jafnvel haft þetta að atvinnu!
Svo að ég var soltið feimin því ég var sú eina líka se kunni ekki almennilega á myndavélina né þrífótinn. 
Við höfðum 3 klukkutíma til að skjóta öll atriðin okkar í hópnum. Sá fyrsti byrjaði og það tók hann um 50 mínútur. Þá sú næsta og það tók hana um klukkutíma. Þá höfðum við 1 klst og 10 mín eftir fyrir okkur hin tvö. 
Þau tóku sér allan þann tíma í heiminum til að vera eins mögulega pró og mögulegt var! Stilla upp myndavélinni hérna....neiiii stilla henni upp hérna....neiiiii stilla henni upp hérna................
Ég hafði reyndar allan þennan tíma til að finna út hvað ég ætlaði að gera svo að við fórum og skutum mínar senur næst. 

Ég leið svolítið minniháttar í þessum hóp svo að mig langaði bara að gera eitthvað til að fá fólk til að hlæja. Svo að sagan mín var eftirfarandi:
Stelpa sem fer inn á klósett til að borða bananann sinn. 

Við hentumst inn á klósett, drifum þetta af á kortéri!
Svo þegar tökum dagsins lauk, horfði hópurinn á afraksturinn. 
Og viti menn:
Þar voru allir sammála um að senurnar hjá litlu íslensku stúlkunni með enga prófessíónal reynslu, væru langbestar! En það var líka af því að "allt var svo útúrpælt.........." 
Einmitt.....


Svo eftir skóla á föstudaginn ætluðum við nú aldeilis að skella okkur á lífið!
Planið var að hittast í heimapartýi hjá stelpu í bekknum og skella okkur á klúbba á eftir.
Partýið var gott, fólk var hresst og lestaferðin niður í miðbæ var fjörug. 
Fórum á klúbb en aðeins helmingurinn af liðinu komst inn vegna skorts á skilríkjum. 
Við fórum nokkur saman og reyndum að finna annan klúbb/bar og löng saga stutt:
Við löbbuðum í 3 klukkustundir þangað til hópurinn fór að tvístrast upp, flestir tóku taxa heim og við enduðum tvö eftir sem þurftum að bíða eftir að lestirnar færu aftur í gang.
Og þá röltuðum við heillengi í leit af hlýjum og góðum bar en fundum engann. En við römbuðum hinsvegar á fínan veitingastað sem var opinn klukkan hálf 4, settumst þar inn og fengum okkur ostbörger og bjór. Allt er nú til í París!
Lestirnar fara ekki í gang fyrr en um 6 á morgnanna svo að eftir ljúffengan málsverð og áfengar veigar, löbbuðum við um París til að láta tímann líða. 

Það getur allt gerst í París!


» 17 hafa sagt sína skoðun

16.10.2010 16:18:06 / tinnsla

Lífið í París

París...ó París. 

Ég bý í París. Það er fáránlegt! En samt satt. Þriðja vikan langt liðin en tala enn ekki stakt orð í frönsku. 
Bonsjúr
Mersí búkú
Ofvar

Allt of sumt. 

Það gekk svona ansi brösulega að læra á lestarkerfið í þessum bæ. En eftir nokkrar rangar lestir á mjög svo ranga staði þá fór þetta nú að lærast smám saman. 
Ég bý hjá henni Dóru frænku og fjölskyldunni hennar þangað til annað býðst. Þau búa í bæ aðeins fyrir utan París sem heitir Maisons Laffitte. Mjög krúttlegur og rólegur bær. En það er ekki beint hægðarleikur að komast í skólann á hverjum degi....
Leggja af stað tveimur klukkutímum áður en skólinn byrjar, taka eina lest í miðbæ Parísar, skipta þar um lest og taka aðra sem fer aftur út úr París á stað sem heitir Sant Denis. Þar tek ég strætó og eftir aðeins nokkrar stoppistöðvar er ég komin kílómeter frá skólanum og labba þaðan....Frábært!!

Þegar ég var nýkomin ákvað ég að taka fimmtudaginn áður en skólinn byrjaði til að labba um hverfið og finna skólann. Viti menn; ég gekk beint inn í Harlem Parísar. Allar blokkirnar með naglaða fjalir fyrir gluggunum, veggsprey út um allt, hangandi föt úr gluggunum og svartir kauðar standandi fyrir framan bílana sína með franska rapptónlist á fullu og horfðu á eftir mér með hatursaugum. 
Guði sé lof, að þá hafði ég lesið vitlaust á kortið og labbað í vitlausa átt. Skólinn er staðsettur við endann á "Harlem" hverfinu en ekki er mælt með að labba í því hverfi þegar dimma tekur.

Skólinn byrjaði með alvöru á mánudaginn 4. október. Þar var vika tekin í að læra á klippiforritið Final Cut Pro. Alveg eins og alvöru gaurarnir eru að nota í Hollívúdd. Það er töff. 
Bekkurinn minn er frábær! Hingað koma krakkar allsstaðar af úr heiminum. Indland, Bandaríkin, Kanada, Sri Lanka, Mexíkó, Suður Afríka, Swizz, Austurríki og ég gæti talið endalaust upp!
Þau djamma endalaust mikið, sem er frábær leið til að kynnast en þar sem ég bý út í rassgati að þá hef ég aðeins verið með í eitt skipti. Sem var alveg magnað!
Þar sem ég bý svona langt frá, þá hætta lestirnar að ganga í bæinn minn kl. 1 og byrja ekki aftur fyrr en um 6 á morgnanna. Þannig að ef maður ætlar að taka tjútt í bænum, verður manni svo að vera alvara og taka alvöru Íslending á þetta!

Á djamminu sem við fórum, hittumst við öll á bar í París þar sem Happy Hour tók allar gáfurlegar hugsanir í burtu stundarkorn. Þar var drukkið fram að miðnætti og tekið Metró lest annað en þar fórum við í heimapartý hjá einum í bekknum. En það var ekki bara partý þar heldur í annari hvorri íbúð og í lokin voru öll partýin búin að sameinast úti á götu. 
Ég stóð þarna upp við vegg að spjalla við fullt af fólki, í góðu geimi og aldrei hressari! Áður en ég vissi var ískaldri vatnsgusu skellt yfir okkur af efstu hæðinni! Þá var bara ein húsmóðirin orðin leið á partýlátunum og vildi láta af sér vita. 
Allir renndandi blautir og komnir með vatnsblandað lögg í glösin hjá sér. 

Ekki að þetta hafi stoppað partýlætin samt......

Stuttu seinna var sú gamla alveg búin að fá nóg og hendi blómavasa niður og hann mölvaðist á stéttinni. Sem betur fer varð enginn fyrir þessari fólksu árás en þarna tókst henni að þagga niður í okkur.

Allt getur gerst í París.

Síðustu daga hefur verið verkfall hjá blessuðu Frökkunum. Sem er ekki töff því lestasamgöngurnar fara allar í rugl og ég hef ekki getað farið í skólann síðan á mánudaginn. Þegar ég lét skólastjórann minn vita af því sagði hann að það væru flestir sem væru búnir að lenda frekar illa í því vegna verkfallsins. 
Letingjar...

En ég mun halda ykkur heitum með nýjum fréttum við og við. 

Og munið bara;
Það getur allt gerst í París....

» 14 hafa sagt sína skoðun

16.04.2009 20:17:09 / tinnsla

Kostningar....

Ég er búin að vera í stökustu vandræðum með að ákveða hvað ég á að kjósa í þessum blessuðu Alþingiskostingum eftir nokkra daga. 

Og nú veit ég.

Sá flokkur sem stígur fram og gefur mér alveg ógeðslega mikinn pening, fær mitt atkvæði!

Gamla góða mútunin! 
Klikkar ekki...

Er með símann opinn núna (og bankabókina...)

Bíð spennt!

Tinnus


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.03.2009 01:38:43 / tinnsla

Kvikmynda-list...

Helgi Gunnarsson.

Þannig byrjaði þetta allt saman.
Allt út af Helga. 
Hvaða, hvaða.
Fékk boð um að koma á kvikmyndasýningu í sláturhúsinu góða á Egilsstöðum. Og þar sem ég er nú áhugamanneskja um kvikmyndir og ætla einmitt í slíkt nám að þá var ég meira en lítið til í að kíkja á það, með heilum hug. 

En ég vissi því miður ekki út í hvað ég var að fara. 

Við Helgi búin að staupa í okkur einn bjór eða svo til að halda okkur kátum og heitum fyrir gleðina miklu. 

Mættum fyrir framan og gengum inn. Þar beið okkar örfáir, verð að segja, fólk sem ég þekki ekki og vil ekki þekkja..........
Þá fóru nú að renna á mig tvær, þrjár grímur eða svo.
"Út í hvað erum við eiginlega að fara?" spurðum við hvort annað. 
Við fengum svo bækling í hönd þar sem "listamennirnir" fengu að tjá sig og segja frá hver fyrri verk þeirra voru. 

Klukkan sló hálf 9. Sjóið byrjað.

Hauskúpa skellt á vegg með myndvarpa og lýst upp með sjálflýsandi málningu. 

Tölur um allt mögulegt sem á gekk í heiminum: brunar, giftingar, dauði, slys og annað.

Kona að mála vegg. Efri hlutinn blár, neðri hlutinn rauður. Konan sjálf í blárri peysu og rauðu pilsi. Eftir málunina (btw myndskeiðið var ekkert klippt!!!!!) stóð konan fyrir framan vegginn og átti þar með að blandast í vegginn...glatað þar sem fötin voru ekki einu sinni almennilega í stíl! Ekki töff!

Maður hangandi í loftinu með sverð. Á móti var annar maður, hangandi í loftinu með sverð. Þetta átti að vera sami maðurinn að skylmast við sjálfan sig. Einstaklega átakanlegt............(!!!!!)

Krot á súlum. (Bókstaflega!!!!)

Kona inn í glugga. Hreyfandi hendurnar upp og niður, til hliðar og ská. 
Átti að tákna krotið á súlunum.



Þarna sjáiði. 
Þetta á víst að kallast list, þessa dagana. 
Ég fór þarna, heilshugar, á kvikmyndasýningu í von um að sjá kvikmyndir sem ungir og óreyndir kvikmyndagerðamenn væru að dunda sér við en nei...ég lenti í 

HELVÍTI!!

En verð ég nú að koma á framfæri að ljósi punkturinn í þessu öllu saman var ókeypis maturinn og áfengið í Valaskjálf á eftir.
Það gladdi okkur mjög!

Ég segi nú bara over and out, í ruglinu!

P.S......Fólk.....drullisti til að kvitta þegar þið kíkið í heimsókn! Ég vil vita hvort að einhver sé að skoða eiður ei!!! Bara segja "Hæ" eða "Bæ"! 
Arigght?!

Tinnus

» 10 hafa sagt sína skoðun

22.02.2009 23:09:48 / tinnsla

Veikindi eða lærdómur?

Jú gott fólk.
Þessa síðustu daga sem ég hef verið hér á Eyrinni kæru, hef ég fengið einhversskonar uppgötvun. Einhvern ljóma. Ljóma sem lýsir upp líf mitt á myrkum dögum. Ég get verið ánægð með það hvað ég á. Hvað ég hef. Hvað ég mun eiga. 
Ég get verið ánægð með það að geta gengið, geta séð, geta heyrt!

En hvaða ljós var það sem kviknaði í lífi mínu?
Jú, það var flensan.
Blessunin hún inflúensan.

Þessa síðustu daga hef ég upplifað þvílíkt helvíti á jörðu að ég þakka guði fyrir allt það sem ég á og hef og bið ekki um neitt annað. 
Ekki neitt annað en að FÁ ALDREI ÞESSA #$%&@ PEST AFTUR!!!!!!!!!
Heyriru það þarna uppi?????? ALDREI!!!!!

Nú hef ég upplifað það hvernig er að geta ekki labbað! 
(út af verkjum og aumingjalegheitum)
Ég hef upplifað það hvernig er að sjá ekki!
(vegna stíflu og sýkingar í ennisholum og nefi, gat ég ekki haldið augunum opnum, táraðist endalaust og þoldi ekki ljós)
Ég hef upplifað hvernig er að finna enga lykt né bragð!
(einnig út af stíflum og viðbjóð í andlitinu á mér)
Ég hef upplifað hvernig er að heyra ekki neitt!
(Kvíði fyrir brakinu og brestunum þegar stíflan fer þaðan)

Þannig að í dag er ég breytt manneskja!

Tökum lýsi!
Það verndar oss frá illu.

Guð blessi
Hin uppljómaða Tinna


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.02.2009 14:27:45 / tinnsla

Frá Danmörk til Íslands...

Jebb. Bekk tú Æsland. 

Búin að ganga í gegnum erfiða kveðjustund með henni Maríu minni eftir frábæra dvöl þarna úti hjá þeim skötuhjúum. Á eftir að sakna pleisins verulega mikið og þakka ég Maríu minni og Hinrik æðislega fyrir frábæran tíma!
Núna þurfum við að taka New World, OlsenOlsen og Veiðimann í gegnum Skype!
En djöfull var gaman að finna það að Ísland er ekki eina landið í heiminum! Stundum festist maður svolítið í þeirri hugsun þegar maður býr hér. 
En núna veit maður að það er ekki erfiðara en þetta að drífa sig bara! 
Víííííííí

En það er nú ágætt svo sem að vera komin heim aftur. 
Núna getur maður farið að huga betur að Eurovision!

Ég lenti á föstudaginn 13. febrúar.... föstudagurinn 13..
Frábær dagur til að ferðast...!(!!!)
Eníveis, kom alveg tímanlega til landsins því þann 13. átti hann Máni brósi afmæli og Kári hafði undirbúið smá surprise gleði fyrir kjellinn.
Ég, Kári og Magga byrjuðum á að fara upp á hótel til Mána og Ragnhildar að fá okkur drykk, áður en við fórum svo út að borða á Tapas barnum en þar hafði Kári safnað saman fullt af liði til að koma Mána á óvart. 
Eftir drykkinn(a) upp á hóteli skelltum við okkur svo í taxa á leið niður í bæ.
Þegar við mættum svo á svæðið vildi nú ekki betur til en að hálft partýið var úti að reykja! Þannig að þar hvarf það surprise....
En helvíti næs kveld samt sem áður. 
Borðuðum skjeggjaðan mat, drukkum suddalega mikið og enduðum svo í heimapartýi hjá Bjössa, vini Mána. 

Framtíðin er framundan.

Guð blessi
Undirrituð.









Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir....?

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.02.2009 11:56:22 / tinnsla

Danmörk....plööööö

Já. Danmörk segiði.
Tinnsli litli ennþá lítill atvinnuleysingi...
Tinnsli litli verulega peningalítill...
Tinnsli litli vantar að djaaaaaaamma...

Hef verið að sækja um fuuuullt af vinnum hérna en lítið gerst. 
Nei...EKKERT gerst!!!
Fór svo á atvinnuleitarskrifstofu hérna í síðustu viku og fékk þá blautu tusku í andlitið að ég væri að koma til Danmerkur á hræðilegum tíma til að leita að vinnu. Ekki nóg með það að það er atvinnuleysi heldur er fólk ekki að ráða litla, ljóta útlendinga eins og mig í vinnu 
Og þar sem að Tinnsli litli þarf að borga skuldir, verð ég að spýta í lófana eða hundskast heim á atvinnuleysisbætur.
Stuttu eftir að ég fór frá Íslandi komu milljón auglýsingar og fréttir um að leita væri eftir Íslendingum í vinnu í NOREGI!!! Það er ekki Danmörk....neiiiiiiiiiii!!!!!

En hvernig sem fer ætla ég að vera fyrir austan í sumar.
Ég ætla að leiga með henni Berglindi minni í Fjóluhvamminum og...verð vonandi með vinnu....
En get ekki neitar að það er ýmislegt sem maður hlakkar til þegar ég kem til land íssins:
- Íslenska vatnið! (!!!)
- Herbalife! (!!!!!!!)
- Halda Eurovision partý
- Halda hið langþráða videókvöld okkar Estherar
- Fara í badmington með Tinnu
- Finna - 18°c leika um andlit vort
- Fara að skrensa um á Grænu þrumunni með steríóið í botni
- Fara á fyllerí hverja einustu helgi!!!
- Lifa á núðlum, sem er það ódýrasta á Íslandi í dag eða á 1.300kr pakkinn...
- Að sjá litlu prinsessuna hennar Kollu!

Og nú vil ég einmitt óska Kollu, Árna og Dimmu innilega til hamingju með hana Helgu Tinnu (í höfuðið á mér og Helga, bróður Kollu. Fundum upp á þessu alveg sjálf!)
Hlakka innilega til að hitta ykkur öll næst þegar ég kem.
Og Kolla...3 bjórar í boði minns! :D

En þar sem að minns er að verða peningalaus, vil ég benda á styrktarsjóð Tinnu. Í guðanna bænum, gefið mér pening!
Gefið mér pening!!!!!!!!!!
Ég á ekki einu sinni sjampó!

En þangað til næst...
Guð blessi (mig því að ég er svo fátæk)

Hæ Hæ!

» 11 hafa sagt sína skoðun

27.01.2009 18:24:20 / tinnsla

Lífs eða liðin?

Jææææææææja börnin mín góð.

Á ég að láta vita eitthvað aðeins af mér?

Ég er úti í Danmörku. Döööööö

Takk og bless.

Nei nei. Bara grín. Smá glens. 
En samt ekkert grín. Bý hérna í Lyngby hjá Maríu og Hinrik. Elskulegt af þeim að leyfa fífli eins og mér að vera.
Við höfum nú brallað ýmislegt síðan ég kom. 

Var smá rigningarveður hérna um daginn. Kom einn blossi og ég var gríðarlega spennt yfir að það væri að koma þrumuveður. 
Lásum það í fréttunum seinna að þetta var loftsteinn sem lenti hérna í Evrópu. 
Ömó. Ég vildi þrumur og eldingar!!!!

Fórum í IKEA einn góðan laugardagsmorgun (kl. 10 ef ég á að vera nákvæm)
en tilgangurinn með þeirri ferð var að næla sér í ókeypis sæng og kodda. En það var víst ekki eins auðvelt og það hljómar, því ef maður mætti í náttfötunum í IKEA, fékk maður ókeypis sæng og kodda. 
Að sjálfsögðu drifum við okkur á náttbuxunum- og bolunum, í úlpunum okkar yfir því, jahh...það var skítkalt!
En nei nei...við máttum gjöra svo vel að fara ÚR úlpunum þegar við mættum í IKEA og labba í gegnum heila pleisið, til að sanna að við værum í náttfötum allan hringinn. 
Það var spes. 
En fengum fría sæng og kodda. 

Við María kíktum svo í afmælispartý hjá bróður hennar sem á lítinn bar í Köben og var partýið haldið þar. Og viti menn...hálfur Egilsstaðarbær að sjálfsögðu þar á bæ! Maður sleppur ekki undan þessum kvikindum, hvar sem maður er!
En þar var sem sagt drukkinn upp lagerinn af öllum jólaTuborgnum sem var til á lager. Úff.
Við María vorum duglegar með myndavélina að taka myndir af liðinu (s.s. öllum Egilsstaðarbúunum......) en það vildi ekki svo betur til að í eitt skiptið þegar ég ætlaði að smella af einni mynd, þá var myndavélin bara horfin!
Hún hefur ekki fundist aftur.
Blessuð sé minning hennar.
BTW þar var einmitt mynd af okkur Maríu á náttfötunum með sængurnar og koddana, verulega sáttar!

Ég hef verið að leita af vinnu hérna og komist að því að maður þarf sem sagt að vera skráður á eitthvað heimilsfang bara til að geta SÓTT UM vinnu hérna. 
Þannig að ég dreif mig í að finna þá herbergi sem fyrst.
Fyrsta herbergið sem ég skoðaði...
*hrollur*
Það var sem sagt herbergi sem var í íbúð sem leigðist út með öðrum. 
8fm herbergi. Engin stofa. Eitt klósett á sömu hæð og herbergið. Og þá meina ég BARA klósett. Eldhúsið lítið en kósí. 
Maður átti svo að labba niður í kjallara (niður tröppur Satans...) en þar var þvottahús og útgangur út í hringgarðinn en þessi íbúð var í blokk sem kom í hring og þessi garður var inn í þeim hring. 
En ekki nóg með það, því maður þurfti að ganga út í þennan hringgarð og labba inn í annan kjallara lengra í burtu til að geta farið í sturtu... WTF!
Kannski er maður bara svona góðu vanur en....mér fannst þetta ekkkkki töff!

Svo skoðaði ég annað herbergi sem var í íbúð fullorðinnar konu. Þegar ég kom að skoða það, bauð konan mér í te og við spjölluðum í klukkutíma eða svo og svoleiðis smullum saman! 
Herbergið var þokkalega mikið 28fm á stærð með aðgang að öllu! 
Nokkrum sinnum í viku kom svo heimilishjálp til að þrífa, svo að konan sagði mér að láta allt svoleiðis vera. Stofa með sjónvarpi, þráðlaust internet, baðherbergi með sturtu OG baðkari á lítinn pening.
Ég átti að fá að vita síðasta föstudag hvort ég fengi herbergið.

Kerlingadruslan hringdi aldrei aftur.

Aftur á byrjunarreit.

En íbúðin þeirra skötuhjúa er alveg frábær. Gott að vera hérna og þægilegt umhverfi.
Og til að toppa allt, þá eru einhverjar viðgerðir búnar að vera í gangi í blokkinni þannig að síðustu viku er búin að vera lokað fyrir vatnið frá kl. 8 - 15 á daginn...og þegar maður er heima allan daginn að drekka kaffi er erfitt að halda í sér. 
Þannig að þetta fór eiginlega bara í keppni, líkt og ég, Herdís og Jara gerðum gjarnan sem krakkar. Ná sem gulasta litinum í klósettið...

En
lítið meira að segja eins og er!
Verð í spotta þegar málin fara að þróast meira!

Guð blessi!
Rinntinntinnus

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.01.2009 15:03:06 / tinnsla

Tíminn líður...

Hilsen í kroppinn!

Gleðileg jól
Gleðilegt ár
Til hamingju með páskana

...og allt það

Jólin voru...naaaammi!! Ég er feitt ógeð! Ég borðaði. Því er ekki hægt að neita. En það var ansi næs að vera heima með de hele famelien...og borða. 

Skrapp svo suður um áramótin til Kára bró og Möggu og þar var...borðað??!!!
Yndislegt.
Drykkjan er annað mál og er ekki birtingarhæf á vef þessum. 

En spólum áfram. 

Er mætt í Danaveldið. Ég bý upp á henni Maríu minni og Hinrik rétt við Köben.
Svo er það bara að leggjast í það að leita að vinnensí og herbergjensí, da? Da?

Ég er rússnensk.

Flaug hingað með Iceland Express og verð bara að segja...þessar vélar eru KRAP!!! Skítur í dollu! Plássið í þessum skítavélum er álíka og gömlu rörin sem flugu á milli Akureyrar og Egilsstaða þegar ég var lítil! 
Ég tók mér sérstakan tíma nóttina áður en ég flaug út að hlaða fartölvuna mína til að horfa á DVD á leiðinni því að, bíddubíddu, það er ekkert sjónvarp í þessu kúka Express vélum!!!!!!!!!!
En málin þróuðust á þann veg að ég sá ekki á skjáinn því að ég þurfti að beygja tölvuna svo mikið niður þegar maðurinn fyrir framan hallaði sætinu. 
Ekki sátt.
Svo ætlaði yours truly þá bara að reyna að leggja sig...
það gekk þannig fyrir sig að þegar maður fór að dotta datt hausinn á mér á gluggann eða í bringuna á mér.
Ekki sátt.
En ég KOMST allavegana til Danmerkur. 
Sátt.

Er að fara að vinna í að klára að henda inn myndum frá brúðkaupinu þeirra Kára og Möggu í sumar (sorry, Kási.....) og einnig frá júlentiden!

Verð í spotta!

Tenna í Danmörku!



» 10 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 19:55:52 / tinnsla

What's going on....!

Heil og sæl!

Tinna hér.

Margir mánuðir samankomnir í einu bloggi og hljómar svo:

Þá er sumarið búið. 

Búin að vinna. Gott var nú samt sem áður að vinna í sveitinni góðu. 
En fyrir vikið voru því mun færri djömm tekin þar sem vinnan var mikil og vinnan var...jahh...út í rassgati!
Verð að játa að eitt skemmtilegasta kvöldið var þegar við bestu vinkonurnar leigðum okkur Gulla Sindra (og rútuna hans með....) og hentumst á Eskifjörð að veeeerulega frábært dansiball! Þó svo, reyndar, að rútuferðin sjálf var æðinslegust við þetta húllumhæ.
En sá sorgaratburður átti sér stað daginn eftir að hann Tóti lést. (Dihatsuinn minn kæri). Megi hann hvíla í friði og þakka ég góðar stundir. En í dag er ég komin á verulegan skrjóð, er Græna Þruman kallast. 
Við Þórey áttum samt ansi góðar stundir saman, eitt og eitt kvöld. Náðum að skella okkur á LungA á fimmtudagskvöldið og gistum þar í hálfu tjaldi. Það var töff, en kalt. 
Um verslunamannahelgina fóru allir til Eyja. Nema ég og Þórey. Við fórum á harmonikkuball í Brúarási. Bæði kvöldin. Drukkum vodka í Sprite og viskí í kók. Það var töff. 
En örfáum dögum eftir það var komið að hápunkti sumarsins. 

Mallorca.

Mallorca...

Mallorca!!!!!!!!!!!! Hell yeah!!!!!!

Það var með einu orði sagt AWESOME!!! 

Við fórum tvær en komum aftur fjórar. Þið spyrjið ykkur sjálfsagt:
Hey, hvernig er það hægt?
Jú. Það er afskaplega auðvelt. 
Þið farið 2 til Mallorca og gerist afar ölvaðar í flugvélinni og valdið usla. 
Þið haldið áfram slíkri ölvun og þá sérstaklega á hinum gríðarstóra skemmtistað BCM, þar sem áfengið er frítt gegn vissu innkomugjaldi. Þar inni skellið þið í ykkur nokkrar gasblöðrur og dansið af ykkur rassinn. Þá mun það gerast að þið hittið vinkonu-vinkonu ykkar frá Reyðafirði og vinkonu hennar. Þá gerist það að þið límist svoleiðis saman að þið verðið að 4. 
Eftir að þið eruð orðnar 4 þá skuluð þið ákveða það að skella ykkur til Ibiza með ferju einn laugardaginn. Þar um borð eigið þið að drekka visst mikið af hvít - og rauðvíni því þá verðið þið að miðju athyglinnar. Þegar til Ibiza er komið....geymið veskið ykkar. Þar er dýrt. Finnið ykkur frekar einhverja karlmenn sem versla handa ykkur allt sem þið viljið að drekka, bjóða upp á frímiða á alla flottu klúbbana (m.a. Amnesia og Privilege) og rúnta svo með ykkur um alla eyjuna á topplausum jeppling. 
Eftir alla gleðina þar mætið þið galvösk á bryggjuna á ný kl. 8 um morguninn og látið renna af ykkur, sitjandi á styttu á meðan beðið er eftir að ferjan leysi landfestar. 
En þegar til Mallorca er komið á ný, skal aðeins ferðast um á vespum. Þá er gaman að villast og drífast á ólöglega staði s.s. hraðbrautina. 
Einnig er fínt að skellast í vatnsleikjagarða og komast þar að því að þið eruð orðin svo gömul að þið hræðist ýmislegt t.d. HUGES rennibraut þar sem gengið eru upp þónokkra stiga á áfangastað. Þegar upp er komið farið þið að skjálfa úr hræðslu því hæðin er nokkuð mikil. Þegar kemur svo að því að renna sér niður nær maður pínkulitlu pípi upp úr sér áður en maginn á manni hendist upp í kok. Vissir kvenkyns líkamspartar eiga það þá til að fyllast af vatni og sundbrók. 
Þegar ferðin fer að skríða á seinni helminginn, þá er gott að eyða öllum helv peningnum ykkar og hringja svo í alla sem þið þekki til að betla meira þ.á.m. bankann. Á leiðinni heim skuluð þið svo sitja, helst hlið við hlið en láta svo skipta ykkur upp vegna einhvers misskilnings. Þá er gott að detta í það og spila á spil. 

Vá. Leiðinleg saga um einfalda hluti. En þetta var s.s. Mallorca ferðin í hnotskurn. Myndir segja meira en nokkur orð. www.myspace.com/atinna

En í dag. 
Akureyri. Vinna í videóleigu er eitt sinn við bónus var kennd. Missa svo þá vinnu um jólin og íhuga brottfluttning. 

Nóg í bili. 
Ég lofa að vera dugleg að blogga í nákominni framtíð!

Munið bara að drullast (!!!!!!) til að kvitta hjá oss og munið eftir hinum síðunum mínum:

www.myspace.com/atinna
...mikið af myndum þar eftir langa pásu í innsetningi....

og svo er ég einhversstaðar á Facebook...er að vinna í henni...kemur allt saman...

Over and out
Rinntinntinntinntinntinnnnnnn.......



» 14 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 15:29:15 / tinnsla

Æm alæf!!!

Jú gott fólk!! Ég lifi enn!

Fyrir þau ykkur sem héldu annað, ég lifi.

Ég bý nú annað sumarið í röð í sveit með afskaplega takmarkaða internettengingu...svo að lífinu er tekið með ró (sem sagt drullutussu mikilli vinnu.....)

Ég hef kvatt mína ástkæru Akureyri í bili og er ég í augnablikinu að drepast úr söknuð af öllu liðinu mínu þar nyrðra. MEIRA að segja sakna ég Bónusvideó.

Til mikillar tilbreytingar fer ég ekki í skóla í haust. Þess í stað mun ég benda og hlæja af þeim sem það leggja á sig þegar ég mun liggja á stöndinni á Mallorca! Hahh!!

News?

Jú, Kári bró er að fara að ganga til kaups á brúði núna 12. júlí. Mikil verður nú gleðin þar á bæ fyrir utan litla bachelorinn sem leynist í honum Kára. Hann fer að gráta.
Undirrituð er nú jafnvel að hugsa sér gott til glóðarinnar og halda ræðu en til að þora því þarf nú nokkur tekílaskot og þónokkur þokkalega tóm kampavínsglös....

En núna ætla ég að koma á framfæri óánægju minni á skattinum, bara svona...til að tala um eitthvað skemmtilegt...(??)
Nú er maður of góðu vanur, búin að vera í skóla í 14 ár, safna upp brjáluðum persónuafslætti og vinna svo ruglað mikið á sumrin og fá heeeelling af pening. En núna er öldin önnur. Ég er útskrifuð, vann mjög mikið með skólanum síðasta árið mitt og ætlaði að vera svo sniðug og gera það sama og síðast liðnu sumur: vinna sjúklega mikið og fá helling af pening. En aldeilis var mín fyrir miklum vonbrigðum, maður minn!! Vann einhverja 29 daga mánaðarins, oftast 11 - 16 tíma vaktir á dag og fékk bara þokkalega vel útborgað. Þá var mín nú glöð....þangað til ég opnaði heimabankann. Þá féll veröld mín í svartasta tóm. Tæpur 150.000kr hirtar af mér og skellt í skatt. Frábært.
En þá kemur nú stæðsta hugleiðingin: Hvað fæ ÉG frá skattinum á móti????
T.d. út í Danmörku þá er skatturinn frekar hár en fólkið fær svo miklu meira til baka á móti. Læknakostnaður, tannlæknakostnaður, skólar, leikskólar, name it!
Ég hef ekki farið til tannlæknis síðan ég var 17 ára því að ég veit að ég myndi hreinlega ekki hafa efni á því. Alla mína framhaldsskólagöngu hef ég þurft að borga fyrir skólann sjálfann, félagsgjöld og annað, og líka fyrir allar bækur.
Þjóðvegur 1 er ekki fullmalbikaður og einnig er verulega mikið af einbreiðum brúm.
Ég gæti talið þetta endalaust upp sem hægt væri að gera fyrir þennan skattpening.

Margir sem ég þekki eru öryrkjar og styð ég alveg að borga í skatt fyrir þau. En svo eru einnig margir sem ég þekki sem eru aumingjar og nenna ekki að vinna og eru þess vegna á atvinnuleysisbótum...ég vil EKKI þurfa að borga fyrir þau.

En þetta var litla biturleikahornið hennar Tinnu litlu, sem er á barmi taugaáfalls yfir því að vera komin út í lífið.

Guð blessi
Tinnsí

» 10 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 21:56:19 / tinnsla

Ó mæ gat, ó mæ gat, ó mæ gat!

ó mæ gat, ó mæ gat, ó mæ gat!!!

Ísland áfram í Eurovision!! 

Eruð þið að skilja þetta??? 

Þvílík gleði!!!!

Ekki nóg með það að ég er að útskrifast á laugardaginn 24. maí, held veislu og var alltaf planið að fylgjast með Eurovision með öðru auganu EN NÚNA!(!!!)....verður son of a bitch of a partý!!! 

Þá er það ákveðið að gengið verði inn í rúmfatalagerinn á morgun, föstudaginn, til að kaupa fána on a stick til að blakta í partýi voru! ! ! 

Þá ætlar mín að vera göfug og eyða smá pening í áfengar veigar fyrir partýið sem slíkt!!! 

Jiiiiiiiiii hvað það verður gaaaaaman!!!

Gó Ísland!
(Og gó ég fyrir að ÚTSKRIFAST ACTUALLY!!!!!)

Písát 
hin ofsaglaða 
Júróvisíjón Tinna

» 6 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 16:31:32 / tinnsla

Hámark græðginnar?

Jú satt og rétt. Hámark græðginnar er ég, Auðdís Tinna Hallgríms. Að þessu komst ég á föstudag einn er leið. En þá var hún Tinna litla ekki búin að eiga neinn almennilegan nammidag í um 2 vikur og var algjörega að drepast úr þörf á sælgæti og viðbjóði. En frú Tinna gat bara hreinlega ekki beðið fram á laugardaginn svo að hún ákvað að demba sér í sukkið á föstudeginum og byrjaði morguninn með súkkulaðistykki og leið ekki sá klukkutími að eitthvað ógeð rann niður ginið á henni. En sama hversu södd hún var orðin og komin með mikið ógeð á öllum þessum viðbjóð hélt hún samt sem áður áfram að troða slíkum viðbjóð í sig og vildi helst ekki hætta fyrr en allt nammi sem framleitt hefur verið átti leið um garnir hennar. Þannig að hún át og hún át....
Um kvöldið þegar hún sat fyrir framan sjónvarpið var hún farin að finna til kennda í maga sínum en það stöðvaði því miður ekki sælgætisátið. 
Seint um nóttina gerðist það þá. Hún hafði laggst til rekkju sinnar með útblásinn maga og viðbjóðslega líðan og reyndi að sofna. Svo vaknaði hún með fælum þegar hún áttaði sig á því að hún þyrfti greinilega að kasta þessum viðbjóði frá sér. Hún spretti inn á klósettið og faðmaði klósettskálina en ekkert gerðist. Ekkert annað en kalt svitabað og mikið munnvatnsrennsli. Og verður nú að segjast að ekki gerði lyktin upp úr klósettinu gott og gilt gagn þar sem að klósettsteinninn var uppurinn. En þá, loksins, kom gusan eftir langa og stranga bið. 
Súkkulaði-Doritos-salsasósu-karlmellu-Powerade þykkni lá þar fyrir framan hana fljótandi í vatninu. Ógeðslegt bragð og gubbukögglar festust í vitjum hennar. 
En heilsan var betri. 
Og hún fitnar þá ekki á meðan...

Ef einhver annar getur toppað þessa hámark græðginnar, þá máttu vera minn gestur. 

Guð blessi.
Frú Tinna

» 9 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 16:22:30 / tinnsla

Nýjasta nýtt!

  

Um páskana var fundið upp nytsamleg nýjung á nafninu mínu, eitthvað sem allir geta tengt sig við.
Ef að þið ertuð búin að hakka í ykkur helling af góðum mat á dýrlegum stundum, líkt og um jól og páska og eruð svo jafnvel að fara að skella í ykkur bjór á eftir en lítið pláss er eftir og finnið svo brátt fyrir því að náttúran kallar, skuluð þið labba hægt og óáberandi inn á klósett með dagblað undir handarkrikanum, skrúfa frá kalda vatninu í botn, láta um það bil 25-30 mínútur líða uns þið mætið meðal manna á ný, hlamma ykkur niður í sófann og segja svo:
Aaaahhhh, hvað segiði, var ekki afgangur af matnum???
Það er kallað “að taka Tinnu á þetta.”
Þetta tók fjölskyldan mín upp um páskana og er þetta óspart notað enn þann dag í dag. Ný orðarbók verður gefin út á næsta ári með orðaskýringum við þessa nýjung.

P.s. Ég og Þórey leitum af tveimur einstaklingum sem vill fljóta með okkur í ferð til Mallorca í ágúst. Um er að ræða fyllerí, djamm, brúnka, hösssssl, dansidans, túristaskoð og EKKERT F$%&/G drama!!! Hver er geim?? Kostar u.þ.b. 67.000 kr!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 24758
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 1 nóvember
Klukkan